Heitur reitur er staður á yfirborði jarðar þar sem eldvirkni er vegna möttulstróks sem ber heita kviku úr iðrum jarðar upp að jarðskorpunni. Hawaiieyjar eru myndaðar af heitum reit undir kyrrahafsflekanum, þessi 2.700 km eyjaklasi hefur myndast á stað þar sem 4.000 km eru í næstu heimsálfu.