Möttulstrókar myndast í iðrum jarðar og ná djúpt niður í möttulinn og eru um 200° C heitara en umhverfið. Þegar jarðskorpan rís losnar þrýstingur og efsti hluti möttulstróksins bráðnar og myndar oftast basalt kviku. Kvikan sem berst upp með möttulstróknum ber þess merki að hafa verið í iðrum jarðar í allt að 2000 milljón ár, án þess að hafa komið upp á yfirborðið.