Á milli jarðskorpunnar og kjarna jarðar myndast tæplega 2900 km þykkt lag sem kallast Möttullinn. Mikill hiti og þrýstingur veldur því að möttulbergið verður svo mjúkt og lint að það hreyfist ofurhægt vegna varmans sem berst frá kjarnanum um möttulinn til yfirborðsins með iðustraumum og möttulstrókum.