Yst á jörðinni er þunnt lag af bergi sem nefnist jarðskorpa. Jarðskorpan er 7-70km þykk og skiptist í úthafsskorpu og meginlandsskorpu. Úthafsskorpan er mjög þunn, hún er bara 7-11 km þykk. Úthafsskorpan er undir úthöfunum. Meginlandsskorpan er um 35-40 km þykk, undir fellingafjöllum er hún þykkust því þar hefur henni verið þrýst saman.